Þekkingarnetið leitar að öflugum verkefnastjóra á starfsstöð stofnunarinnar á Húsavík. Við leitum að einstaklingi sem hefur reynslu af rekstri, góða samskiptahæfni og býr yfir frumkvæði og sjálfstæði í störfum. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem unnið er þvert á öll stoðsvið stofnunarinnar.
Öll áhugasöm eru hvött til að senda inn ferilskrá með umsagnaraðilum ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni til starfsins.
Nánari upplýsingar veitir Lilja Rögnvaldsdóttir í síma 464-5100 eða með tölvupósti á lilja@hac.is.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með daglegum rekstri og þróun starfsemi
- Áætlanagerð, uppgjör og ársreikningar
- Samstarf við ráðuneyti, atvinnulíf, sveitarfélög og fræðsluaðila
- Fjármögnun verkefna og gerð styrkumsókna
- Samningagerð
- Umsjón með leigusamningum og þjónustu við leigjendur
- Launaumsýsla
- Skýrslugerð, tölfræði úr starfi og miðlun upplýsinga
- Kynningar, móttaka hópa og skipulag viðburða
- Teymisvinna í fjölbreyttum verkefnum á stoðsviðum stofnunarinnar
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
- Reynsla af rekstri, stjórnun og mannauðsmálum er kostur
- Drifkraftur og frumkvæði í starfi
- Lausnamiðuð hugsun og jákvæð lund
- Góð færni í samskiptum og samstarfi
- Haldgóð þekking á fagsviðum Þekkingarnetsins er kostur
- Geta til að halda utan um mörg verkefni samtímis
- Góð tölvukunnátta og tæknilæsi
- Gott vald á íslensku og ensku
Starfsstöð og dagleg viðvera starfsmanns er í vinnuklasanum STÉTTINNI á Húsavík, þar sem Þekkingarnetið hefur höfuðstöðvar. Búseta á ársvísu og þátttaka í samfélaginu er mikilvægur hluti af starfseminni. Um er að ræða fullt starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. desember.
Umsóknarfrestur fyrir starfið er til og með 16. ágúst.
Sótt er um starfið á alfred.is: