Á síðasta HönnunarÞingi fengum við til okkar verðlaunarithöfundinn Jody Eddy, sem flutti afar fræðandi og skemmtileg erindi um heilaga hönnun í matargerð og hönnun matreiðslubóka. Það er okkur mikill heiður að segja frá því að hún hefur fjallað reglulega um heimsókn sína á Norðurlandið, frumkvöðlana, kokkanna og hönnuðina sem hún kynntist á HönnunarÞingi. Fyrir stuttu birti hún grein um HönnunarÞingið og starfsemi Hraðins í vefmiðli sínum “What’s Good Here by Jody Eddy”
Í greininni sem ber heitið Húsavík: A Food Design Conference in Northern Iceland, lýsir Jody upplifun sinni af hátíðinni og því hvernig Hraðið sinni stórum verkefnum í litlu samfélagi. Hún segir að HönnunarÞingið hafi fest sig í sessi sem árlegur viðburður hjá íslensku nýsköpunar- og hönnunarsenunni og að áhersla þessa árs á mat, hönnun og nýsköpun hafi skapað magnaðan stökkpall tengslanets, spennandi og þverfaglegar umræður.
Jody Eddy lýsir einnig á skemmtilegan hátt matarferðalagi sínu um Ísland og hvernig seigla og hugmyndafræði Íslendinga hafi haft áhrif á líf hennar og starfsferil í gegnum tíðina. Hún nefnir Húsavík sem gott dæmi um hvernig lítil samfélög geti skapað mikilvægan vettvang fyrir sköpun, frumkvöðlastarf og tengslamyndun.
Við þökkum Jody innilega fyrir þessi fallegu orð og hvetjum öll til að lesa grein hennar:
Húsavík: A Food Design Conference in Northern Iceland
Við hvetjum ykkur einnig til að taka strax frá dagana 24.-27. september,,…drive north, the landscape widening and quieting as Icelandic horses running in an amber light in the shadows of glacier-capped mountains come into view…. In the north, the Iceland I first fell for is still legible: vast, raw, and humbling in a way that resets your sense of scale.“ Nánari upplýsingar í upphafi nýs árs á www.hradid.is.
Takk SSNE fyrir að standa með okkur í að efla nýsköpunarsenuna í landshlutanum!