Fullt út úr dyrum á HönnunarÞingi!

Um helgina fór fram hin árlega hátíð hönnunar og nýsköpunar, HönnunarÞing // DesignThing á Húsavík. Þar var fullt út úr dyrum á fjölbreyttum viðburðum ráðstefnunnar en í ár var fókusinn á mat sem fékk sérstakt vægi og tengdi saman ólíkar greinar með nýjum og skapandi hætti.

Ráðstefnan fór fram á Stéttinni á Húsavík og þar ríkti lífleg stemning alla helgina, þar sem þátttakendur, fyrirlesarar og gestir komu saman til að deila hugmyndum, miðla reynslu og ræða ný tækifæri. Í þessum samtölum urðu til fjölmargar hugmyndir og tengsl sem áhugavert verður að fylgjast með á komandi misserum.

Á dagskránni voru meðal annars ávarp menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, Loga Einarssonar, fyrirlestrar frumkvöðla og hönnuða, sýningar, sköpunarverk matreiðslufólks og tónlistaratriði. Verkefnin og erindin vörpuðu ljósi á það hvernig skapandi greinar og frumkvöðlastarf geta mættst á fjölbreyttan hátt og skapað nýjar tengingar, hugmyndir og upplifanir.

Lögð var áhersla á að tryggja aðgengi allra að viðburðinum og var boðið upp á túlkun á öllum dagskrárliðum. Þá tóku veitingastaðir á Húsavík einnig þátt í viðburðinum með því að prófa sig áfram með ný hráefni og bragðsamsetningar. Þar má meðal annars nefna kolmunna sem hingað til hefur aðallega verið notaður í mjölframleiðslu en fékk nú nýtt hlutverk á diskum gesta.

Að HönnunarÞingi stendur Hraðið – miðstöð nýsköpunar á Húsavík – með vöruhönnuðinn Stefán Pétur Sólveigarson í fararbroddi. Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) eru samstarfsaðili verkefnisins og leggja áherslu á að vekja athygli á tækifærum í nýsköpun, menningu og skapandi greinum. Með viðburðinum er meðal annars leitast við að opna augu fólks fyrir þeim möguleikum sem felast í því að starfa við hönnun og skapandi greinar um allt land.

Dagskrá HönnunarÞings var fjölbreytt og spannaði viðfangsefni allt frá skordýrapróteini, hringrásarhagkerfi og glatvarma til umbúðahönnunar, bragðþjálfunar, keramiklistar, líffræðilegs fjölbreytileika og nýtingar hráefna. Einnig var fjallað um samfélag, matarhefðir, handverk, sjálfbærni, hönnunarvernd, vörumerki og framtíðarsýn til ársins 2050. Með þessum fjölbreytta efnivið var leitast við að sýna hvernig skapandi hugsun getur tengt saman ólíkar greinar og kveikt nýja neista nýsköpunar.