Hugmyndastormur á Húsavík

Krubbur hugmyndahraðhlaup fór fram á Stéttinni á Húsavík dagana 20.–21. mars, þar sem þátttakendur og gestir fylltu húsið af krafti, sköpunargleði og nýjum hugmyndum.

Á tveimur dögum unnu þátttakendur að lausnum við tvær áskoranir: Betri bær fyrir börn og Opni glugginn. Samhliða fengu þeir þjálfun í nýsköpunarhugsun, leiðsögn frá reynslumiklum mentorum og stuðning við að þróa og kynna hugmyndir sínar.

Alls voru tólf hugmyndir kynntar fyrir dómnefnd í lok viðburðarins, en þar lauk ekki ferðalaginu heldur hófst næsti áfangi í að gera hugmyndirnar að veruleika.

Nýsköpunarþjálfun í byggðum landsins

Markmið Krubbs er að hvetja til frumkvæðis og hugmyndasköpunar á sama tíma og hann eflir vistkerfi nýsköpunar í heimabyggð. Þátttakendur Krubbsins fengu þjálfun í nýsköpun og frumkvöðlahugsun á 16 klst nýsköpunarnámskeiði sem leitt var af Háskólanum á Akureyri og Hraðinu. Í Krubbi árið 2025 var undirritaður samstarfssamningur milli HA og Þekkingarnetsins og er þetta námskeið afrakstur þess. Allir þátttakendur Krubbsins fengu staðfestingu á að hafa lokið því.

Verðlaunahugmyndir Krubbs

Fimm hugmyndir hlutu verðlaun að þessu sinni.

Krubbsverðlaun ársins hlutu Lara Schmitz, Julie Boesen og Antonia Assler fyrir hugmyndina Hvalahljóðaleið, eða Echoes of the Deep. Hugmyndin felur í sér gönguleið frá bænum að Sjóböðunum með þremur áningarstöðum þar sem skúlptúrar, innblásnir af hvalategundum í Skjálfanda, mynda hljóð með hjálp vindsins. Með þessu er náttúran virkjuð á skapandi hátt og upplifun gesta auðguð.

Fyrstu verðlaun í áskoruninni „Betri bær fyrir börn“ hlaut Silja Rúnar Reynisdóttir fyrir hugmyndina Hjarta leiks og gleði. Verkefnið snýst um vistvænt leiksvæði í Skrúðgarðinum, byggt á hugmyndum barna úr Krakkakrubbi. Hugmyndin leggur áherslu á fjölbreytt leiksvæði og sögulegt samhengi garðsins sem öruggs leiksvæðis fyrir börn.

Hvatningarverðlaun í sama flokki hlaut hugmyndin Sjávarverur, unnin af Björgunarsveitinni Garðari undir forystu Ingibjargar Benediktsdóttur. Þar er lagt til að setja upp endurvinnslutunnur í formi hvala sem jafnframt eru leik- og fræðslueiningar með upplýsingum um lífríki og plastmengun.

Besta lausn í „Opna glugganum“ var hugmynd Aniu Wójcik, , sem snýr að hönnun minjagripa sem vekja athygli á hafinu og tengjast sérstöðu Húsavíkur. Verkefnið er komið langt áleiðis og nánast tilbúið til framleiðslu.

Hvatningarverðlaun Hraðsins í „Opna glugganum“ hlaut Elías Óli Tinnuson Björnsson fyrir hugmyndina Plan It. Um er að ræða smáforrit sem tengir framhaldsskólanema saman út frá áhugamálum og viðburðum, með það að markmiði að draga úr einmanaleika og efla þátttöku.

Silja Rún Reynisdóttir átti vinningshugmyndina fyrir áskorun um betri bæ fyrir börn. Hér skoðar hún hugmyndirnar úr Krakkakrubbi með börnunum.
Antonia, Lara og Julie voru sigurvegar Krubbsins 2026. Hér eru þær með frumgerð sína fyrir verkefnið Hvalahljóðaleið (Echos Of The Deep).

Krakkakrubbur – innblástur frá yngstu kynslóðinni

Samhliða viðburðinum fór fram Krakkakrubbur í samstarfi við Borgarhólsskóla. Hugmyndir barnanna reyndust öflugur innblástur fyrir þátttakendur, en tvær af verðlaunahugmyndunum byggðu beint á þeirra vinnu. Hér má lesa meira um Krakkakrubb.

Viðburðurinn var haldinn af SSNE og Háskólanum á Akureyri, undir forystu Hraðsins, í samstarfi við fjölda aðila. Fjölmargir styrktaraðilar og samstarfsaðilar komu að verkefninu og lögðu sitt af mörkum til að efla nýsköpun og skapandi hugsun í samfélaginu.

Krubbur dregur nafn sitt af hinu þekkta Krubbsveðri á Húsavík, stormi sem heldur fólki innandyra. Að þessu sinni geisaði þó stormurinn í hugum þátttakenda, þar sem hugmyndir fengu að vaxa og dafna. Þátttakendur voru á breiðu aldursbili, 16 ára og eldri, og skapaðist þannig öflug blanda reynslu og nýrrar hugsunar sem styrkir nýsköpun á Norðurlandi.

Elías Óli Tinnuson Björnsson var yngsti keppandinn og fékk verðlaun fyrir hugmyndina Plan It.
Þjálfarar og keppendur ráða ráðum sínum.