Útgefið efni

  • NorthQuake 2022. The 4th International Workshop on Earthquakes in North Iceland. Ed. Sigurjón Jónsson et al. 2022.
  • Þingeyjarsýslur í tölum. Samantekt helstu hagtalna í Þingeyjarsýslum undanfarin ár. Unnið af Lilju Berglind Rögnvaldsdóttur og Elíasi Árna Eyþórssyni. September  2022.
  • Mannfjöldaþróun í Þingeyjarsýslu 2013-2022. Upplýsingar um mannfjöldaþróun í Þingeyjarsýslu eru gefnar út árlega. Unnið af Helenu Eydís Ingólfsdóttur. Apríl 2022.
  • Hamingja og vellíðan í Mývatnssveit. Íbúakönnun sem Þekkingarnetið hefur framvæmt undanfarin ár fyrir Skútustaðahrepp. Unnið af Lilju Berglind Rögnvaldsdóttur. Apríl 2021.
  • Ársskýrsla 2021 og starfsáætlun 2022. Unnið af starfsfólki Þekkingarnetsins. Febrúar 2022.
  • Þróun og þekking: Ný nálgun í stoðkerfi byggða. Í þessari skýrslu er skipulag og starfsemi þekkingarstofnana á dreifbýlum svæðum í nágrannalöndum okkar skoðað sem og þróun þeirra í kjölfar fjórðu iðnbyltingarinnar. Staða þekkingarsamfélaga á dreifbýlum svæðum á Íslandi er jafnframt borin saman við niðurstöðurnar og leitast við að meta möguleika landsins til framþróunar í þeim efnum. Að endingu er raundæmi um þekkingarsamfélag „Hús þekkingar og atvinnulífs á Húsavík“, sem byggir á ofangreindri vinnu, útfært og kynnt. Verkefnið var áhersluverkefni SSNE og hlaut styrk þaðan í júní 2020. Unnið af Ólöfu Traustadóttur, Óla Halldórssyni, Lilju B. Rögnvaldsdóttur og Helenu Eydísi Ingólfsdóttur. Janúar 2021.
  • Ársskýrsla 2020 og starfsáætlun 2021. Unnið af Óla Halldórssyni og öðru starfsfólki Þekkingarnetsins. Febrúar 2021.
  • Mannfjöldaþróun í Þingeyjarsýslu 2012-2021. Upplýsingar um mannfjöldaþróun í Þingeyjarsýslu eru gefnar út árlega. Unnið af Helenu Eydís Ingólfsdóttur. Mars 2021.
  • Hamingja og vellíðan í Mývatnssveit. Íbúakönnun sem Þekkingarnetið hefur framvæmt í þrígang fyrir Skútustaðahrepp í þeim tilgangi að kanna hamingju og vellíðan íbúa til hagnýtrar ákvarðanatöku sveitarstjórnar Skútustaðahrepps, með það að leiðarljósi að auka hamingju og vellíðan íbúa. Unnið af Lilju Berglind Rögnvaldsdóttur. Apríl 2021.
  • Sögur úr sveitinni. Heimildahlaðvarp með viðtölum við eldra fólk í Mývatnssveit um lífið í sveitinni fyrr á tímum. Meðal þess sem rætt er um í þáttunum er daglegt líf við vatnið og hvernig það breyttist með árstíðunum. Einnig Kröflueldarnir, Laxárdeilan, umbreyting sveitarinnar úr fámennum stað í fjölsóttan ferðamannastað, þróun atvinnulífs og margt fleira. Úr viðtölunum vann Margrét fjóra hlaðvarpsþætti undir heitinu Sögur úr sveitinni. Þeir eru aðgengilegir á Spotify og Podbean.
  • Byltingar og byggðaþróun: Hlutverk þekkingarsetra í byggðaþróun fjórðu iðnbyltingarinnar. Verkefnið Byltingar og byggðaþróun hlaut í maí 2020 styrk Byggðarannsóknarsjóðs til að greina áhrif fjórðu iðnbyltingarinnar í byggðum landsins og mögulegar leiðir til að nýta innviði þekkingarsetra til að mæta áskorunum og tækifærum byltingarinnar. Verkefnið er samstarfsverkefni Þekkingarnets Þingeyinga og Nýheima Þekkingaseturs. Desember 2021.
  •  
  • Ársskýrsla 2019 og starfsáætlun 2020. Unnið af Óla Halldórssyni og öðru starfsfólki Þekkingarnetsins. Febrúar 2020.
  • FjarfundamenningFjarfundir. Myndbönd um fjarfundi: Lög og reglur og fundastjórn og tækni. Unnið af Helenu Eydísi Ingólfsdóttur ásamt Helga Svavarsyni og Sif Jóhannesdóttur hjá SÍMEY. Mars 2020.
  • Hamingja og vellíðan í Mývatnssveit: Niðurstöður íbúakönnunar 2020. Unnið af Lilju Berglind Rögnvaldsdóttur. Mars 2020.
  • Störf án staðsetningar: Greining á fjarvinnslu í Þingeyjarsýslum. Unnið af Dagnýju Theódórsdóttur. Ágúst 2020.
  • Skáld á skökkum stað: Heimildahlaðvarp um skáldkonuna Jakobínu Sigurðardóttur. Unnið af Valgerði Maríu Þorsteinsdóttur, nema í bókmenntafræði í Háskóla Íslands. Verkefnið er hluti átaksverkefnis stjórnvalda um sumarstörf námsmanna 2020. Ágúst 2020.
  • Lífið í Flatey: Heimildahlaðvarp í fjórum þáttum um lífið í Flatey á árum áður.  Unnið af Bjargeyju Ingólfsdóttur, nema í tölvunarfræði við Stockholms University og Páli Hlíðari Svavarssyni nema í Menntaskólanum á Akureyri. Verkefnið er hluti átaksverkefnis stjórnvalda um sumarstörf námsmanna 2020. Ágúst 2020.
  • Kópasker sem þjónustukjarni: Sýn íbúa á lágmarks þjónustuþætti í héraði og gildi Kópaskers sem þjónustukjarna. Unnið af Lilju Berglind Rögnvaldsdóttur. Október 2020.
  • Mannfjöldaþróun í Þingeyjarsýslu 2011-2020. Unnið af Helenu Eydísi Ingólfsdóttur. Nóvember 2020.
  • Grásleppu- og laxveiðar: Er jákvæð fylgni á milli? Unnið af Árdísi Ingu Höskuldsdóttur, nema í sjávarútvegsfræði í Háskólanum á Akureyri. Verkefnið er hluti átaksverkefnis stjórnvalda um sumarstörf námsmanna 2020. Desember 2020.
  •